Morgunblaðið hefur farið hamförum í baráttu sinni gegn Jo Biden, forseta Bandaríkjanna, og gert lítið úr honum bæði í leiðurum og fréttaflutningi. Á dögunum þegar fjölmiðlar heimsins loguðu vegna fregna af ákærum á hendur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var Davíð Oddsson upprifinn yfir því að Biden hefði hugsanlega vitað af vafasömum viðskiptum sonar síns, Hunter Biden. Það mál hafnaði á forsíðu Moggans og í leiðara blaðsins.
Örfrétt var aftarlega í blaðinu um ákærurnar á Trump. Sérstaka athygli vekur að blaðamenn Moggans fylgja ritstjóra sínum fast eftir í árásunum og þráhyggjunni varðandi sitjandi forseta Bandaríkjanna. Þessi fréttaflutningur Moggans er í boði auðkonunnar Guðbjargar Matthíasdóttur í Vestmnannaeyjum sem er stærsti eigandi fjölmiðilsins og hýsill Davíðs Oddssonar ritstjóra …