Eimskip hefur sagt upp 39 manns hér á landi vegna hagræðingar og skipulagsbreytinga.
„Með þessum aðgerðum styrkjum við fjárhagslegar stoðir félagsins sem og reksturinn til framtíðar. Þá má ekki gleyma að félagið hefur fjárfest töluvert í sjálfvirknivæðingu og umbótum á ferlum og vinnulagi sem styður við þessar aðgerðir. Við sjáum ekki fyrir okkur frekari aðgerðir af þessari stærðagráðu í nánustu framtíð,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri félagsins í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Stöðugildum fækkar hjá félaginu um 73 á heimsvísu og eru þar af 47 á Íslandi. Beinar uppsagnir eru 55 talsins og þar eru 39 á Íslandi. Fækkun stöðugilda nær til flestra starfshópa fyrirtækisins þar með talið til stjórnenda. Laun forstjórans lækka um tíu prósent.
„Á sama tíma og við ráðumst í þessar sársaukafullu aðgerðir hef ég óskað eftir því við stjórn félagsins að lækka laun mín um 10% og þannig sýna í verki að þessar hagræðingaraðgerðir nái til allra laga í fyrirtækinu,“ segir Vilhelm.
„Við erum mjög meðvituð um hlutverk Eimskips sem mikilvægs innviðafyrirtækis í flutningaþjónustu á vörum til og frá landinu og í dreifingu innanlands og við munum halda uppi okkar góða þjónustustigi áfram.“