Fæstum dylst að mikil ólga er innan Sjálfstæðisflokksins sem er í alvarlegri fylgiskreppu. Samstarfið milli Sjálfstæðisflokksins og VG er í uppnámi og samskipti milli flokkanna er við frostmark.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var í viðtali á Sprengisandi þar sem Kristján Kristjánsson spurði hana um ágreininginn á milli stjórnarflokkanna sem hún gerði lítið úr og taldi fráleitt að stjórnin myndi springa á aðventunni, eins og Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar spáði. Var svo að skilja á Diljá að samstarfið stæði í blóma. Heldur vafðist henni tunga um tönn þegar talið barst að formannskreppunni og stöðu Bjarna Benediktssonar sem leitt hefur flokkinn í þá niðurlægingu sem blasir við. Diljá hefur verið ákafur stuðningsmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra og studdi hann í formennseinvíginu þar sem um 40 prósent flokksmanna vildu Bjarna burt. Aðspurð um stuðninginn við Bjarna innan flokksins tafsaði hún nokkuð en sagðist svo þráspurð styðja hann til góðra verka í fjármálaráðuneytinu þar sem Bjarni væri réttur maður á réttum stað …