- Auglýsing -
Kristján Þorvaldsson, fjölmiðlamaður, lést í gær á Lálandi í Danmörku.
Kristján starfaði lengi við fjölmiðla. Bæði í útvarpi og á prentmiðlum en hann var einn stofnenda Séð og Heyrt og var þar ritstjóri í áratug. Einnig ritstýrði hann meðal annars Mannlífi og Vikunni. Í nokkur ár var hann með útvarpsþáttinn Sunnudagskaffi á Rás 2.Kristján var fæddur þann 4.maí árið 1962 og var því aðeins 61 árs þegar hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Þorvaldur Jónsson og Oddný Aðalbjörg Jónsdóttir, þau áttu þrjú önnur börn og var Kristján yngstur þeirra. Síðustu ár hefur hann búið í Danmörku og lætur eftir sig sambýliskonu, tvö börn, tvö stjúpbörn og sjö barnabörn.