Björgunarsveitir voru kallaðar út vegna göngumanns sem var í sjálfheldu á Kaldbakshorni á Ströndum í dag.
Upp úr klukkan 13:00 í dag voru björgunarsveitirnar Dagrenning, Björg og Strandasól kallaðar út vegna göngumanns sem hafði lent í sjálfheldu á Kaldbakshorni í Kaldbaksvík á Ströndum. Afar vel gekk að bjarga manninum en aðgerðum lauk á stuttum tíma, samkvæmt staðgengli fjölmiðlafulltrúa Landsbjargar. „Þetta gekk bara mjög vel,“ sagði staðgengillinn en göngumanninum varð ekki meint af. Ekki gat staðgengill fjölmiðlafulltrúans sagt til um hvort um hafi verið að ræða erlendan eða íslenskan göngumann.