Myndband sem sýnir hópslagsmál milli fjöldi manna á bryggju í Alabama, hefur farið um samfélagsmiðlana eins og eldur í sinu undanfarna daga.
Fjölmörg myndskeið hafa birst sem sýna heilmikil hópslagsmál brjótast út á bryggju á Montgomery Riverfront Park í Alabama. Slagsmálin hófust er nokkrir hvítir karlmenn réðust á þeldökkan starfsmann bryggjunnar vegna báts sem flæktist fyrir fljótabáti. Fljótlega hópuðust sífellt fleiri þeldökkir menn að sem létu höggin dynja á upphafsmönnunum. Við það bættust fleiri hvítir aðilar við slagsmálin og úr varð allsherjar hópáflog en lögreglan sem mætti fljótt á vettvang átti í mestu vandræðum með að ráða við slagsmálahundana.
Í einu myndbandinu sést þeldökkur maður berja hvítan mann ítrekað í höfuðið með stól en myndböndin hafa sem áður segir, verið deilt um víðan völl á samfélagsmiðlunum frá því að slagsmálin áttu sér stað, á laugardaginn síðastliðinn.
Þrátt fyrir ofbeldið sem framið var á bága bóga, hefur lögreglan í Montgomery ekki enn handtekið neinn en samkvæmt lögreglunni eru fjórir einstaklingar sem tengjast áflögunum eftirlýstir en mögulega munu fleiri bætast í hópinn.
Daily Mail sagði frá málinu.
Hér má sjá eitt myndskeiðanna en viðkvæmir eru varaðir við: