Kristján Berg, sem þekktur er sem Fiskikóngurinn ætlar ekki að aðhafast neitt vegna slæms frágangs Fjallajeppar hf. á húsnæði sem hann keypti af þeim.
Mannlíf sagði frá því um daginn að Kristján hefði verið allt annað en ánægður þegar hann keypti húsnæði undir rekstur sinn. Frágangur jeppakarlanna var slík, bæði utan húsnæðisins og innan þess, að Kristján sá sig knúinn að skrifa harðorða færslu vegna þess.
Sjá einnig: Ævareiður Fiskikóngurinn í rusli eftir fasteignakaup: „Þvílíkur rasshaus“
Mannlíf heyrði í Kristjáni og spurði hvort hann hyggðist leita réttar síns. „Er búinn að fá afhent og taka til eftir sóðann. Nenni ekki að eyða orkunni í meira vesen. Tek bara höggið,“ sagði Kristján sem var runnin reiðin.