Búið er að bæta við litum í Norðurgötu á Seyðisfirði eða Regnbogans stræti eins og Bubbi Morthens kallaði götuna í þekktu lagi um árið.
Fram kemur í frétt Austurfréttar að Gleðiganga hafi verið gengin á Seyðisfirði á sama tíma og gengið hefur verið í Reykjavík, frá árinu 2014. Til að byrja með voru það nokkrir einstaklingar sem gengu fram og til baka Norðurgötuna þar sem þeir gátu ekki mætt í gleðina í borginni.
Næsta ár, 2015, bættust fleiri í hópinn og var gatan málum í regnbogalitunum fyrir gönguna árið 2016. Síðan þá hefur gatan hlotið heimsfrægð. Tvisvar á ári er lappað upp á götuna en það er gert í byrjun sumar og rétt fyrir Gleðigönguna. Á miðvikudagskvöld málaði hópur fólks götuna og bætti við nýjum litum. Ástæðan fyrir því er sú að skilgreining hinsegin samfélagsins hefur stækkað frá því að regnbogafáninn kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1978 en fyrir fimm árum kom fram nýr fáni þar sem fimm litir höfðu bæst við sem tákn um þann fjölbreytileika sem finna má í hinsegin samfélaginu. Nú eru þeir litir sem sagt komnir á „Regnbogans stræti.“
Svokölliuð hýra halarófan leggur af stað úr Norðurgötunni klukkan 14:00 á morgun og gengur hring í bænum. Austurfrétt segir að reglulega sé bætt í gönguna og að þessu sinni koma samtökin hinsegin Austurland sérstaklega að henni.