Patrik Atlason, betur þekktur undir nafninu Prettyboitjokko vill komast á listamannalaun.
Tónlistarmaðurinn Patrik, sem hefur átt nokkra vinsæla smelli á árinu, vill komast á listamannalaun enda erfitt að lifa á tónlist á Íslandi.
„Langar á listamannalaun,“ skrifaði Patrik í gær á X-inu, sem áður hét Twitter en Patrik er barnabarn Helga í Góu og hefur vakið athygli fyrir rándýran fatasmekk og fyrir að keyra um á 15 milljóna króna bílum.
Færsla sæta súkkulaðidrengsins hlaut ekki rífandi undirtektir en tveir skrifuðu athugasemd, sitt hvoru megin við línuna.
Einar nokkur skrifaði nokkuð neikvæða athugasemd: „Getur afi ekki sett afa strákinn sinn á listamannalaun?“
Þessu svaraði Patrik og sagði: „Búinn að sp vill það ekki“.
Helgi nokkur (ekki í Góu) skrifaði hins vegar afar jákvæða athugasemd: „Átt það skilið – gefur þjóðinni mikið“.