Poppíkonið Britney Spears birti myndskeið á Instagram þar sem hún dansar einhvers konar reiðidans þar sem hún meðal annars gefur millifingurinn.
Fylgjendur Britney Spears á Instagram þekkja dansmyndbönd hennar en ansi reglulega birtir hún áþekk myndbönd þar sem hún dansar og snýr sér í hring eftir hring en í gær birti hún öðruvísi dans, reiðidans.
„Ok, ég var svolítið brjáluð þennan dag,“ skrifaði Spears við færsluna en tók ekki fram hvað hefði reitt hana til reiði. Í myndskeiðinu, sem hægt er að sjá hér fyrir neðan, slær hún ítrekað í rassinn á sér og dansar af áfergju og í lokin sýnir hún miðjufingurinn og rekur út úr sér tunguna. Fínasta leið til að hleypa út reiðinni.
View this post on Instagram