Margt var um manninn í miðborg Reykjavíkur í gær í tilefni Gleðigöngunnar. Dagur B. Eggertsson lét sig ekki vanta enda íbúi miðborgarinnar. Í færslu á Twittersíðu sinni birti borgarstjóri litríkar myndir út mannhafinu undir orðunum:
„Sjaldan eða aldrei verið jafn stoltur af þvi að vera borgarstjóri í Reykjavík einsog einmitt i dag. Hvílíkt mannhaf, hvílík fegurð, hvílík samstaða, hvílík ást og gleði! #ReykjavíkPride“
Hér að neðan má sjá færslu Dags í heild:
Sjaldan eða aldrei verið jafn stoltur af þvi að vera borgarstjóri í Reykjavík einsog einmitt i dag. Hvílíkt mannhaf, hvílík fegurð, hvílík samstaða, hvílík ást og gleði! #ReykjavíkPride pic.twitter.com/lbpBTxbq1E
— [email protected] (@Dagurb) August 12, 2023