Á fjórða tímanum í dag valt bíll á Suðurlandsbraut. Sjúkrabíll, slökkvilið og lögregla mættu á vettvang.
Samkvæmt frétt Vísis var einn í bílnum er slysið gerðist en hann hafði ekið bílnum á umferðaskipti og oltið. Endaði hann á fjölförnum hjólastíg við götuna og fór meðal annars yfir biðstöð fyrir hjólreiðafólk við gatnamót Reykjavegar og Suðurlandsbrautar, að því er kemur fram í frétt Vísis.
Eftir veltuna lá hluti af skilti biðstöðvarinnar fyrir framan framhlutan á bílnum. Hefur ökumaður bílsins náðst úr bílnum og hann kominn í sjúkrabíl. Að sögn vakthafandi varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, Jónasar Árnasonar, var útlit fyrir að meiðsl mannsins væru ekki alvarleg. Var ökumaðurinn fluttur á slysadeild Landspítalans og hafa viðbragðsaðilar hreinsað vettvang slyssins.