Glúmur Baldvinsson vill að Dagur B. Eggertsson verði „sorphirtur“ úr stjórnmálum á Íslandi.
Fyrrum forsetaframbjóðandinn Glúmur Baldvinsson tekur fyrir „mál málanna“ í samfélaginu á landinu, sorphirðu, í nýrri færslu á Facebook. Þar birtir hann ljósmynd af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra, dragandi ruslatunnur á eftir sér. Segir Glúmur að sorphirða sé ekki til staðar og því vilji hann að þjóðinni verði gerður sá greiði að „sorphirða“ borgarstjórann úr stjórnmálum.
Færsluna má lesa hér:
„Nú er ég bara einsog næsti maður áhugasamur um sorp. Sorp er mitt hjartans mál. Og elska að flokka sorp með þýskri nákvæmni. Og því er sorphirða nú mál málanna. Af því hún er ekki til staðar. Og að því sögðu tel ég öllum fyrir bestu og Samfylkingunni líka að þessi verði sorphirtur úr íslenskri pólitík hið fyrsta. Við höfum ekki efni á honum lengur.“