Fyrirtækið Skaginn 3X hefur ákveðið að segja upp 27 starfsmönnum fyrirtækisins á Ísafirði.
Hátæknifyrirtækið Skaginn 3X hefur sagt upp 27 starfsmönnum og ákveðið að loka starfsstöð fyrirtæksins á Ísafirði. Fyrirtækið kennir þungum rekstri um ákvörðunina. Alþjóðlega fyrirtækið Baader er eigandi Skagans 3X en fyrirtækið 60% hlut árið 2020 og svo 40% hlut í fyrra.
„Rekstur Skagans 3X hefur verið mjög þungur síðustu misseri og eins og áður hefur komið fram þurfti fyrirtækið að fara í viðamikið endurmat á skuldbindingum og kröfum í kjölfar eigendaskipta. Þá hefur ólga verið á helstu mörkuðum þess síðustu misseri, bæði vegna stríðsátaka sem tengjast Rússlandi og Covid heimsfaraldursins. Við höfum velt við hverjum steini þar sem þær rekstrar- og markaðslegu forsendur sem lagt var upp með við eigendaskiptin hafa ekki gengið eftir. Niðurstaðan varð sú að samþætta alla framleiðslu á Akranesi,“ segir í tilkynningunni.