Óvæntar upplýsingar komu fram eftir að maður nokkur var stöðvaður við akstur undir áhrifum fíkniefna í miðborginni. Ökumaðurinn hafði verið stöðvaður við eftirlit þegar í ljós kom að ástand hans var slæmt. Hann var handtekinn og dregið úr honum blóð. Við nánari athugun reyndist þarna vera um að ræða mann á flótta undan því að mæta til þess að afplána dóm. Hann hafði verið innkallaður en mætti ekki í fangelsið. Hann er því læstur inni í fangaklefa þar sem hann hvílir. Í dag verður haft samband við fangelsismálayfirvöld svo að mál flóttafangans fái sinn framgang.
Eldur braust út í bifreið sem var á ferð um Miklubraut um klukkan 23 í gærkvöld. Ökumaðurinn komst út úr brennandi bílnum og slökkvilið mætti á staðinn. Lokað var fyrir umferð. Slökkt var í alelda bílnum, fljótt og örugglega. Um altjón er að ræða. Skammt frá brunastaðnum varð umferðarslys þegar þrjár bifreiðar skullu saman á Hringbraut. Lítilsháttar slys urðu á fólki.
Við Kleifarvatn varð bifhjólaslys í gærkvöld. Ökumaður bifhjólsins var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir á svæði Grafarvogslögreglunnar. Málin voru afgreitt með umferðarsekt.