Nú þegar slökkvistarfi er lokið við Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði er dauðaleit gerð að köttum sem bjuggu í húsinu.
Í húsinu á Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði bjuggu 17 einstaklingar, þrátt fyrir að húsið hafi ekki verið samþykkt íbúðarhúsnæði. Allir komust lífs af úr brunanum en hafin er leit af köttum sem þar bjuggu en hafa ekki enn fundist.
Sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinna sem sérhæfa sig í að leita uppi týnd gæludýr, sendu út neyðarkall á Facebook í gærkvöldi. „Við köllum á alla dýravini að hafa augun opin fyrir þessum kisum,“ stóð í tilkynningunni en henni fylgdu ljósmyndir af þeim Stormie, Kodda, Sæta og Augis, köttunum fjórum sem bjuggu í húsinu. Segja þær talið að þrjár þeirra hafi komist út en ekki sé vitað um þann fjórða.
Færsluna má sjá hér að neðan og símanúmer sem hægt er að hringja í ef kettirnir finnast en Dýrfinna varar fólk við að elta kettina, heldur hringja í samtökin í síma 842-5460/775-4234.