Þórunn Antonía, söng- og leikkona, er í atvinnuleit.
Það er ekki á hverjum degi sem jafn hæfileikarík manneskja og Þórunn Antonía óskar eftir vinnu. Hún hefur unnið við næstum allt sem tengist kvikmyndagerð og tónlist auk þess að vera menntaður jógakennari. Þórunn setti færslu á Instagram þar sem hún óskar eftir vinnu og telur fram ýmsa kosti við sig og sína ferilskrá en DV greindi fyrst frá.
Færslu Þórunnar er hægt að lesa hér fyrir neðan
„Góðan daginn alheimur og netheimar, ég ætla að fá mér vinnu þar sem ég er með himin háar og traustar tekjur þar sem ég mun baða börnin mín í dúnmjúku öryggi. Ég er mjög klár í mörgu eins og tónlist og öllu tónlistartengdu, viðburðarstjórnun, ég er afbragðs penni á íslensku og ensku. Börn elska mig og ég þau. Líka dýr þeim er sama þó það sé gagnkvæmt eða ekki.
Ég er bráðsnjöll í hugmyndasmíðum. Skörp orðheppin, fáránlega lausna miðuð og hörkudugleg. Ég hef unnið við allt frá umönnun á dvalarheimilum eldri borgara, til tónlistarbransans á heimsvísu, í forgrunni, bakgrunni, að skrifa um eða syngja og semja.
Ég hef séð um almannatengsl og fjölmiðla fyrir tónlistarhátíðir. Unnið á lager og séð um props, set design og hoppað í flest störf og hlutverk innan sjónvarps- og kvikmyndagerðar, ljós, búningar, förðun, stílisering.
Plús allar fasteignir sem ég hef búið í eða átt hafa endað sem sett í auglýsingaherferðum, sjónvarpsþáttum og bíómyndum því ég hef dálæti á að blanda saman skemmtilegum litum, munum og list.
Ég hef talað inn á teiknimyndir ásamt sjónvarps þátta skrifum/framkomu og leikið í leikritum, þáttum og bíómyndum. Ég hef unnið í útvarpi og þyki með þægilega og seiðandi rödd. Ég elska menningu, listir og allskonar fólk. Er menntuð sem jógakennari og var í klassísku balletnámi í 9 ár.
Sem vill gera heiminn að betri stað, eða bara hversdaginn bærilegan. Ég er sirka þúsund sinnum sterkari en ég lít út fyrir að vera og aðal áhugamál mín eru skrítið fólk, seinni heimsstyrjöldin, áföll og úrvinnsla þeirra, allt sem viðkemur húmor, kettir, motown tónlist og Dolly Parton. Vinsamlegast sendið tilboð sem er ekki hægt að hafna í skilaboðum, takk.“