Bruninn í Hafnarfirði er ekki rannsakaður sem sakamál
Í tilkynningu frá lögreglu er greint frá því að bruninn í Hafnarfirði í gær sé ekki til rannsóknar sem sakamál. Hægt er að lesa tilkynningu lögreglu hér fyrir neðan
„Rannsókn tæknideildar lögreglu á eldsupptökum á Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði í gær stendur yfir. Málið er ekki rannsakað sem sakamál, en það var niðurstaðan að lokinni frumathugun á vettvangi.
Íbúar í húsnæðinu voru þrettán talsins eftir því sem næst verður komist, en þeir náðu allir að forða sér út.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu“