- Auglýsing -
Albert Guðmundsson knattspyrnumaður segir saklaus af ásökunum um kynferðisbrot í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag.
Eins og alþjóð veit hefur Albert verið kærður fyrir kynferðisbrot á konu en meint brot á að hafa átt sér stað hér á landi í júlí síðastliðinn. Albert er leikmaður Genoa á Ítalíu en hann hefur einnig leikið 35 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Albert sendi frá sér yfirlýsingu en hún er í stysta lagi:
„Ég er saklaus af þeim ásökunum sem komið hafa fram. Ég mun ekki tjá mig frekar á meðan málið er til rannsóknar.“