Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var sagt frá að lítið hefði gerst í dag, að þeirra mati.
Tilkynnt var um ölvaðan aðila sem reyndi að komast inn í fjölbýlishús. Aðilinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Aðilinn var nokkuð ölvaður og voru miklir tungumálaörðuleikar. Á stöðinni tókst að ræða betur við aðilann og hann laus að því loknu.
Þá var tilkynnt um nágranna sem var kominn inn í íbúð hjá tilkynnanda. Heimilisfangið er nokkuð þekkt að sögn löreglu en lögreglan kom á staðinn og ræddi við báða aðila.
Tilkynnt var um reyk kom frá íbúð í fjölbýlishúsi. Reyndist reykurinn vera að koma úr potti af eldavélinni. Ekkert var talið skemmt en slökkvilið reykræsti þó íbúðina.
Tilkynnt var um aðila sem var búinn að læsa sig inn í kjallara í húsnæði HÍ. Aðilinn var handtekinn þar sem hann var eftirlýstur.
Tilkynnt var um mannlausa bifreið á miðri Reykjanesbrautinni við Mjóddina. Mikið umferðaröngþveiti myndaðist vegna þessara bifreiðar.