Samfélagsmiðlum Grillsins á Hótel Sögu var lokað þegar samkomubann skall á og sá orðrómur komst á kreik að búið væri að loka Grillinu fyrir fullt og allt. Ingibjörg Ólafsdóttir hótelstjóri á Hótel Sögu sagði í samtali við Mannlíf á dögunum að sá orðrómur ætti ekki við rök að styðjast.
En ástandið er slæmt að sögn Ingibjargar. Hún segir að gripið hafi verið til róttækra aðgerða þegar samkomubannið var sett á og að Grillið verði áfra lokað um óákveðinn tíma. Í samtali við Morgunblaðið segir hún að snemma hafi komið í ljós að litlar tekjur yrðu af rekstrinum á meðan faraldurinn gengi yfir.
Helmingi starfsfólks var sagt upp en matreiðslumenn Grillsins eru enn í vinnu. Að sögn Ingibjargar verður hægt að halda þeim áfram í vinnu ef ríkisstjórnin framlengi hlutabótaúrræðið.
Hún segir óvissu vera uppi um framtíð Grillsins en vonar að hægt sé að finna lausn á málinu svo að hægt verði að opna veitingastaðinn aftur.
„Eins og staðan er núna verður það ekki á næstunni,“ er haft eftir Ingibjörgu í umfjöllun Morgunblaðsins.
Sjá einnig: Segir Grillið of dýrmætt til að loka staðnum fyrir fullt og allt