Ríkisstjórnin vinnur nú að nýjum aðgerðapakka sem er ætlað að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem útbreiðsla COVID-19 hefur á viðkvæma hópa í samfélaginu.
Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra skrifar um þennan aðgerðapakka í pistil sinn sem birtist í Fréttablaðinu.
„Við ætlum að setja fókusinn á börnin og beina sjónum sérstaklega að því að styðja við foreldra í viðkvæmri stöðu, svo sem vegna umönnunar á langveiku eða fötluðu barni. Við munum einnig kynna fjölþættar aðgerðir sem miða að því að auka stuðning við viðkvæma hópa en munum einnig halda áfram markvissum aðgerðum gegn heimilisofbeldi,“ skrifar hann meðal annars.
Hann segir fólkið og fjölskyldur landsins vera dýrmætustu eign samfélagsins. „Þess vegna ætlum við áfram að vinna að aðgerðum til að bæta stöðu viðkvæmra hópa næstu vikur og mánuði.“