Nemendafélag HR leigði þyrlu til að koma með áfengi árið 2004.
„Það var dúndursól og í alla staði fínt,“ sagði Kristján Andrésson, viðskiptafræðinemi, í viðtali við DV árið 2004 um stemminguna. Kristján var einn af þeim sem sá um að skipuleggja útilegu í Þrastarskógi á vegum nemendafélags HR til að bjóða nýnema velkomna. Til þess að koma áfenginu á staðinn var leigð þyrla.
,Ætli þyrlan hafi ekki kostað okkur um 35 þúsund krónur, annars er ég ekki búinn að fá reikninginn,“ segir Kristján um málið. „Við fórum í þessa útilegu til að bjóða nýnema velkomna og með þyrlunni vildum við sýna þeim veldi okkar og ekki síður hitt að það er töff að vera í skólanum,“ en megnið af áfenginu var Tuborg.
„Þetta var Tuborg enda sýna allar skoðanakannanir sem við höfum gert að nemendur í Háskólanum í Reykjavík velja Tuborg þegar þeir ætla að drekka. Enda erum við með góðan díl við Tuborg.“
Kristján sagði að um 150 nemendur hefðu tekið þátt í útilegunni og hefði um það bil þriðjungur af þeim verið nýnemar.