Innbrotsþjófar voru á ferð í nótt ef marka má dagbók lögreglu. Óskað var eftir aðstoð lögreglu í Hafnafjörð eftir að húsráðandi tók eftir því að brotist hafði verið inn í geymslu í fjölbýlishúsi. Síðar um kvöldið var lögregla kölluð út á ný eftir að brotist hafði verið inn í fyrirtæki í Grafarvogi. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort þjófarnir hafi fundist.
Í hverfi 108 og 104 þurfti lögregla að hafa afskipti af ökumönnum semgrunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í Kópavogi var ökumaður stöðvaður en sá reyndist vera undir áhrifum áfengis. Að öðru leyti var nóttin hjá lögreglu róleg og lítið um útköll.