Kanye West hefur verið bannaður af bátafyrirtæki.
Rapparinn Kanye West heldur áfram að koma sér í vandræði en undanfarin ár eru fáir frægir sem hafa verið jafn umdeildir og hann. Nú hefur stjörnunni tekist að vera bannaður af bátaleigu í Feneyjum. Hann var þar ásamt Bianca Censori, eiginkonu sinni, á ferð um Feneyjar í báti frá fyrirtækinu Venezia Turismo Motoscafi. Í siglingu um borgina ákvað rapparinn að girða niður buxurnar og sýna gestum og gangandi rassinn.
„Herra West og eiginkona hans eru ekki lengur velkomin um borð í okkar báta,“ sagði talsmaður fyrirtæksins og að ef skipstjórinn hefði séð þetta atvik hefði hann hringt á lögregluna.