„Þá kveður Guðbergur, þessi blíða og viðkvæma listamannssál sem skreytti sig þyrnum og hornum til að halda fólki á tánum og stundum í skefjum.“ Svo byrjar minningarorð Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur um rithöfundinn Guðberg Bergsson, sem lést 4. september síðastliðinn.
Með færslunni birti Þóra Kristín ljósmynd af þeim Guðbergi og þakkar honum fyrir „allar stundirnar á Vífilsgötunni“, þar á meðal ómetanlegar sögur, hlátur og sorgir. Færsluna má lesa í heild hér fyrir neðan:
„Þá kveður Guðbergur, þessi blíða og viðkvæma listamannssál sem skreytti sig þyrnum og hornum til að halda fólki á tánum og stundum í skefjum. Takk fyrir allar stundirnar á Vifilsgötunni elsku Guðbergur, ketilkaffi og brauð með kæfu og ómetanlegar sögur, lærdóm, hlátur, skemmtun og líka sorg. Minnst af því fór á prent en ekkert er gleymt. Þú átt alltaf sérstakan stað í hjarta mínu sem mikilvæg manneskja og sem ómetanlegur listamaður.