Flug milli Reykjavíkur og Húsavíkur er hættu en flugfélagið Ernir stefnir á að hætta fluginu næstu mánaðamóti.
Íbúar Húsavíkur eru ósáttir við áætlanir Ernis um að hætta flugi milli Reykjavíkur og Húsavíkur og telur Aðalsteinn Baldursson, verkalýðsleiðtogi, þetta vera skelfilegar fréttir.
„Sá orðrómur er uppi um að flugfélagið Ernir sé að hætta flugi til Húsavíkur og síminn hefur vart stoppað hjá mér eftir að þetta spurðist út. Við hjá verkalýðsfélaginu Framsýn höfum haft frumkvæði að því að vinna með Erni og stjórnendum þess á hverjum tíma að láta þetta flug ganga og höfum allt frá upphafi komið að þessu og erum enn að,“ sagði Aðalsteinn í samtali við mbl.is.
„Þetta flug skiptir okkur alveg gríðarlega miklu máli á öllum sviðum. Ég er ekkert að ýkja með það að síminn hjá mér stoppar ekki vegna tengsla okkar við flugfélagið og afkomu okkar að rekstrinum í gegnum tíðina. Það eru allir að hringja.
Ég var að ræða við varaþingmann sem var að hringja í mig, þar á undan framkvæmdastjóra hjá stóru ferðaþjónustufyrirtæki á Húsavík, manni hjá flutningafyrirtæki og í einstaklingi sem á við veikindi að stríða og þarf að fara reglulega suður til Reykjavíkur í geislameðferð. Þetta má bara ekki gerast,“ sagði verkalýðsleiðtoginn.