Óli Björn Kárason, þingmaður, telur það mistök að sameina MA og VMA
„Menntaskólinn á Akureyri skipar sérstakan sess í menntasögu þjóðarinnar sem okkur ber að standa vörð um,“ sagði Óli Björn Kárason alþingismaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við mbl.is en Óli er sjálfur stúdentpróf frá MA sem hann fékk árið 1981.
„MA, Verkmenntaskólinn og Háskólinn á Akureyri hafa sameiginlega myndað traustan grunn undir menntun – ekki aðeins á Akureyri heldur Norðurlandi öllu.“
„Þessir þrír skólar hafa verið styrkur mannlífs, menntunar og atvinnulífsins. Hugmyndin um sameiningu Menntaskólans og Verkmenntaskólans byggir á miklum misskilningi á eðli menntunar. Sameining mun ekki styrkja stöðu menntunar úti á landi, heldur þvert á móti. Fjölbreytileikinn verður minni og möguleikar nemenda til að velja sér skóla og við hæfi minnkar,“ sagði Óli Björn að lokum.