- Auglýsing -
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir er gengin út og er nú komin með kærasta. Sá heppni heitir Þórður Daníel en hann rekur Icestore.bg. Um er að ræða bæði verslun og netverslun í Búlgaríu sem selur nikótínpúða.
Ásdísi þekkja flestir Íslendingar en hefur hún starfað sem fyrirsæta í fjölda mörg ár. Þá er hún einnig einkaþjálfari, þyrluflugmaður, umboðsmaður, rithöfundur, listamaður og fatahönnuður. Ásdís birti mynd af sér á Instagram í gær í faðmi Daníels og virðast þau njóta sín vel í sólinni í Búlgaríu. Mannlíf óskar parinu til hamingju með ástina.