Karlmaður á fertugsaldri sem er einn þeirra ákærðu í Bankastræti Club málinu segist hafa sofið með brunavarnarteppi fyrir glugganum af ótta við bensínsprengjuárás. Þetta kemur fram í greinagerð sem RÚV fjallaði um en Mannlíf fjallaði fyrst um málið í desember á síðasta ári. Í greinagerðinni neitar maðurinn því að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa ætlað sér að fara inn á skemmtistaðinn kvöldið örlagaríka. Til stóð að hræða mennina þrjá sem ráðist var á en úr varð múgæsingur og segist hann ekki hafa vitað að mennirnir væru vopnaðir.
Hópur mannanna sem réðist á þremeningana hafi ætlað að fá þá til þess að hætta að ógna sér og fjölskyldum þeirra. Aðalmeðferð í málinu hefst þann 25.september næstkomandi en ræddi Mannlíf við Jón Pétur Vågseið, einn þeirra ákærðu, í desember í fyrra. Þar fer hann yfir málið og aðdragandann en þáttinn má hlusta á í heild sinni hér.