Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás skömmu fyrir miðnætti í nótt. Árásin átti sér stað á bar í miðbænum og hafði nokkrum tekist að yfirbuga gerandann og halda honum föstum tökum þar til lögregla mætti á vettvang. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Klukkan korter í fjögur í nótt barst lögreglu tilkynning frá íbúum fjölbýlishúss sem var skelkað. Íbúarnir höfðu vaknað upp við grunsamlegar mannaferðir þar sem einhver hafði tekið í hurðarhúna og bankað á hurðir. Þegar lögregla kom á vettvang var aðilinn farinn og fannst ekki í hverfinu þrátt fyrir leit. Að öðru leyti var nóttin hjá lögreglu heldur róleg ef marka má dagbók lögreglu.