- Auglýsing -
Lögreglu barst tilkynning um mann að brjótast inn í geymslur í miðborginni. Þegar lögregla kom á vettvang var aðilinn enn á staðnum og var hann meðal annars búinn að brjóta eina geymsluna. Hann var því handtekinn og vistaður í fagnaklefa en málið er í rannsókn. Að öðru leyti var nóttin hin rólegasta ef marka má dagbók lögreglu og svo virðist sem afar lítið hafi verið um útköll.