Listakonan og leikmyndahönnuðurinn Sunneva Ása Weisshappel opnaði í gær myndlistasýningu í listagallerýinu Robilant+Voena í New York. Sýning Sunnevu ber heitið Odd Girl Out, sem er skírskotun til bókar Rachel Simmons, sem tekur á þáttum eineltis og félagslegrar útskúfunar.
Kvikmyndaframleiðandinn og unnusti Baltasar Kormákur var viðstaddur og aðstoðaði við ýmis verk er viðkomu uppsetningu sýningarinnar.
Sunneva Ása nálgast áhorfandann á tilfinningalega hátt með því markmiði að ögra – og sjálfri sér um leið. Þemu sýningarinnar er byggð á hennar eigin reynslu frá unglingsárunum og eru verkin gegnsýrð af súrsætri nostalgíu.
Í verkum sínum rannsakar hún kvenleikann sem miðar að því að afhjúpa viðkvæman sjarma hans og leyndarmál. Verk hennar einkennast að mýkt og grófleika. Þau flétta saman þemu tíma, fegurðar og ögrunar í gegnum óvenjulegri blöndu í efnisvali eins og gallabuxnaefni, keðjum, reimum, gervinöglum og gömlum Barbie-dúkkum.
Robilant+Voena sérhæfir sig í sýningum verka frá ítölskum og evrópskum listamönnum. Allt frá tímum Renaissance til dagsins í dag.
Sunneva deildi myndefni í story frá kvöldinu á Instagramsíðu sinni, sem skoða má hér.