Gríðarleg starfsmannavelta hefur verið í Ríkiskaupum síðastliðin þrjú ár.
Mannlíf sagði frá því í fyrradag að Sara Lind Guðbergsdóttir, tímabundinn forstjóri Ríkiskaupa, hafi sagt upp fjórum reynslumiklum starfsmönnum stofnunarinnar þann 8. september síðastliðinn. Fram kom í fréttinni að samkvæmt heimildum Mannlífs voru fjórmenningarnir allir að vinna á mismunandi sviðum Ríkiskaupa og í öllum tilvikum međ mestan starfsaldur á sínu sviði. Samkvæmt sömu heimildum er starfsfólkinu afar brugðið.
Sara Lind Guðbergsdóttir, sem Bjarni Benediktsson skipaði tímabundið sem forstjóra Ríkiskaupa, frá 1. apríl til áramóta, sagði ástæðuna vera rekstrarlega. „Þegar stofnanir standa frammi fyrir því að segja fólki upp vegna rekstrarlegra ástæðna, þá fer bara fram ákveðið mat, út frá verkefnum stofnunarinnar og kjarnaverkefnum, sem skila ákveðnum niðurstöðum sem hefur ekkert með það hver á í hlut.“
Starfsmannavelta Ríkiskaupa síðustu þrjú árin er í hæsta móti en alls hafa 25 starfsmenn hætt á tímabilinu 1. september 2020 til 15. september 2023, þar af var sex sagt upp. Á stofnuninni starfa að jafnaði á milli 20 og 25 manns.