Tískuhönnuðurinn og athafnamaðurinn Guðmundur Jörundsson deilir á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, frá því augnabliki að hann áttaði sig á að hann væri orðinn móðir sín.
Í færslunni segir hann frá því þegar hann gekk inn í herbergi sonar síns, sem sat og spilaði á Playstation-tölvuna sína. Guðmundur hafi fussað fyrir þungu lofti í herbergina og rakleiðis gegnið að glugganum og opnað hann.
Sonur hans hafi því næst rekið upp örvæntingaóp og sig og síðan við samspilara sína: „Ohhh neeeeei, pabbi! – Pabbi drap mig, þetta var pabba að kenna. Hann fór alveg fyrir sjónvarpið“
Steig rétt í þessu inní herbergi sonar míns sem sat í playstation og fussaði yfir þungu lofti, opnaði gluggann og heyrði „ohhh neeeeei pabbi!! Pabbi drap mig þetta var pabba að kenna hann fór alveg fyrir sjónvarpið“ og skyndilega rann það upp fyrir mér að ég er loks móðir mín.
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) September 15, 2023