Atli Þór Fanndal vandar Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. Þá birtir hann mynd með færslunni sem er skjáskot af viðburði frá Ungum xD. Þar sést í pontu Leó Árnason, fjárfestir og eigandi fasteignafélagsins Sigtúns, halda tölu um uppbygginguna á nýja miðbænum í Selfossi. Með færslunni skrifar Atli:
„Það má alltaf treysta á Sjálfstæðisflokkinn. Aldrei skal haldinn viðburður án Samherja og ekki skal það stoppa neinn þótt keynote speaker sé á borði héraðssaksóknara vegna ábendinga um mútur. Samviska flokksins stendur sig. Smekkleysan er algjör.“
Hér að neðan má sjá færslu Atla Þórs í heild:
Sjá nánar: