Miðvikudagur 23. október, 2024
3 C
Reykjavik

Áætla 4 milljónir í klukku: „Hræðilegur í sínu starf eða þá að verktakar eru að mergsjúga borgina“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rekstur Reykjavíkurborgar hefur sætt töluverðri gagnrýni upp á síðkastið. Sorphirða, snjómokstur, stofnun stýrihópa og fleira hafa vakið hörð viðbrögð íbúa.  Ekkert lát virðist vera á þeirri gagnrýni enda sumir kostnaðarliðir nær óskiljanlegir fyrir óbreytta íbúa. Þá er færsla Oddrúnar Magnúsdóttur, á Twitter, skýrt dæmi.

Oddrún birtir skjáskot með færslunni. Á þeim gefur að líta kosningasíðu inni á Betri Reykjavík þar sem íbúum gefst kostur á að kjósa um verkefni sem þeim finnast brýn. Með færslunni skrifar hún:

„Hver sá sem sér um að áætla kostnað við verkefni fyrir Betri Reykjavík er annað hvort hræðilegur í sínu starf eða þá að verktakar eru að mergsjúga borgina“.

Oddrún furðar sig á áætluðum kostnaði verkefnanna: „7 milljónir fyrir flipa á heimasíðu? 4 milljónir fyrir klukku???“

 

Fjögurra milljón króna klukka með hitamæli. Mynd/Skjáskot frá færslunni á Twitter
Skilti og auka flipi á heimasíðu áætlaður kostnaður sjö milljónir
Mynd/Skjáskot frá færslunni á Twitter

Einn hefur ritað undir færsluna og spyr: „Má bjóða þér útigrill á 3 milljónir, eða hjólaskýli á 12?

- Auglýsing -

Image

Sá hinn sami birtir skjáskot af verkefni sem felur í sér vegvísi að undirgöngum við Snorrabraut og furðar sig á áætlanagerðinni og segir:

„Skil heldur ekki þessa kostnaðaráætlun nema vegvísirinn verði steyptur úr kókaíni.“

- Auglýsing -

Hér að neðan má sjá færsluna í heild:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -