Glúmur Balvinsson deilir því með fylgjendum sínum að hann hafi farið í stutta heimsókn til foreldra sinna fyrir skemmstu, þegar óvænt var drepið á dyrum. Gesturinn var Katrín nokkur úr Hafnarfirði, gamla barnapía Glúms Baldvinsson, sonar Jóns Baldvins Hannibalssonar.
„Hún sagði eftirfarandi sögu um hvernig hún fékk þann starfa að passa mig: Jú fyrst var ég kölluð á fund ömmu þinnar frú Aldísar Schram sem mælti með mér,“ deilir Glúmur í færslunni og segir hana því næst hafa farið á fund föður hans sem spurði hana tveggja spurninga:
„Reykirðu? Já sagði ég. Drekkurðu? Jú jú. Þú ert ráðin var svarið.“
Þá bætir Glúmur við í lokin, í athugasemd við færsluna: „Það skal tekið fram að Kata reyndist mér yndisleg fóstra. Ógleymanleg“
Hér að neðan má sjá færslu Glúms í heild: