Engin skipulögð leit á vegum björgunarsveitanna verður gerð í dag að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long en hennar hefur verið saknað síðan á skírdag. Þetta kemur fram í frétt á vef Vísis. Þar er haft eftir Jónasi Guðmundssyni, verkefnastjóra hjá Landsbjörgu, að frekari leit verði sett af stað ef nýjar vísendingar berist.
Björgunarsveitarmenn leituðu Söndru við Álftanes í gær en bíll hennar fannst þar á laugardaginn. Björgunarsveitir frestuðu leitinni um fimmleytið í gær.
Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar að Flatarhrauni í Hafnarfirði, hefur stýrt leitinni að Söndru. Hann segist ekki telja að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. „Það er ekkert sem bendir til þess og engar vísbendingar í þá veru. Við erum að leita núna og fylgja eftir þeim vísbendingum sem hafa verið að koma,“ sagði Skúli í gær.
Lögreglan hefur bent á að þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Söndru, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.
Uppfært kl 12:22:
Tilkynning frá lögreglu barst klukkan 12:13. Í henni segir að leitin að Söndru verði með þeim hætti í dag að þyrla Landhelgisgæslunnar verði við leit við strandlengjuna, þ.e. frá Gróttu og suður fyrir Álftanes. Jafnframt munu björgunarsveitarmenn vakta sama svæði á háfjöru.