Háskólaprófessorinn Ian McMullen telur að kenna eigi börnum að þekkja falsfréttir
Eins og Íslendingar hafa fengið að kynnast á undanförnum vikum hafa falsfréttir færst í aukanna. Á Íslandi hafa þær aðallega snúist um kynfræðslu og hinsegin fræðslu í grunnskólum. Þar hefur fólk meðal annars sakað meðlimi Samtaka 78 um barnagirnd, tekið myndir úr samhengi og jafnvel falsað myndir máli sínu til stuðnings. Ian McMullen, prófessor í stjórnmálafræði við Pennsylvaníu-háskóla, hélt fyrir stuttu fyrirlestur um falsfréttir á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, sendiráðs Bandaríkjanna og Fjölmiðlanefndar.
„Eitt af því sem ég tel að skólar, fræðarar og jafnvel foreldrar geti gert er að veita börnum reynslu, áþreifanlega reynslu af staðbundnum fréttum, fréttaveitum, fréttafólki, vísindum, borgaravísindum, beinni þátttöku í vísindum til þess að börn geti skilið að sumum heimildum í heiminum er enn hægt að treysta.“
„Ég held að internetið og tæknin hafi aukið magn falsfrétta svo mjög að það veldur glænýjum vandamálum,“ sagði McMullen í samtali við RÚV.