- Auglýsing -
Nýtt ofurpar hefur nú skotist fram á sjónarsviðið. Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata og Sigurjón Guðjónsson rannsóknarsálfræðingur og X-stjarna, eru glænýtt par.
Vísir segir frá þessum stórfréttum en Lenya og Siffi G líkt og hann er kallaður, byrjuðu að rugla saman reytum í byrjun sumars og ef marka má ljósmyndina sem fylgir fréttinni, virðist ástin blómstra hjá unga parinu.
Siffi G er þekktur á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) en Lenya Rún hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu á þingi en hún er varaþingmaður Pírata.