- Auglýsing -
Heilsufrömuðurinn og fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir er komin á fast með spænskum skipstjóra, Jamie. Þessa dagana njóta þau lífsins á spænsku eyjunni Formentera, sem er næst Ibiza.
Jamie starfar sem skipstjóri á farþegabáti sem fer í skoðunarferðir á milli eyjanna.
Linda hefur undanfarið slegið í gegn sem lífsþjálfi fyrir konur. Hún kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd og ná árangri í lífi og starfi. Mörg hundruð konur sækja sér bætt lífsgæði í hverjum mánuði.
Linda hefur byggt upp stórfyrirtæki á vefnum. Þrír starfsmenn aðstoða hana við reksturinn.