CERT-IS varar við svikasíðum á Facebook.
Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, varar við svikaauglýsingum á Facebook sem vísa á falskar vefverslanir sem þykjast selja merkja- og tískuvörur á allt að 90 prósent afslætti. Síðurnar eru svikasíður og er fólk eindregið ráðlagt að forðast þær.
Netöryggissveitin hefur vísbendingar um að svikahrapparnir séu snöggir að setja upp svindlsíður í nafni nýrra aðila og birta auglýsingar um það óspart á Facebook.
CERT-IS bendir á að fórnarlömb svikanna fái kvittanir í tölvupósti eftir gerviviðskiptin þar sem segir að færsla í kortayfirliti berist frá öðrum söluaðila en búast megi við. Það valdi því að fórnarlömbin tilkynni svikin ekki strax til viðskiptabanka síns eða kortafyrirtækis.
Fólk er þess vegna hvatt til að treysta ekki öllum auglýsingum á netinu, heldur horfa á þær gagnrýnum augum sem og að skoða vel færsluyfirlit greiðslukorta sinna og heyra í sínum viðskiptabanka eða kortafyrirtæki, sjái það grunsamlegar færslur.