Helga Vala Helgadóttir birtir kort sem sýnir þau veiðisvæði sem eldislax hefur veiðst síðustu vikur.
Þingmaðurinn fyrrverandi, Helga Vala Helgadóttir lögmaður, birti sláandi kort yfir þau veiðisvæði sem eldislax hefur veiðst undanfarnar vikur. Laxinn er aðallega talinn hafa sloppið úr kví Arctic Fish í Patreksfirði. Helga Vala spyr þriggja spurninga sem sjá má hér að neðan:
„Finnst ykkur þetta bara í lagi? Hvað er að frétta af pólitíkinni? Ætlum við bara að “starfshópa” þetta af okkur?“
Hægt er að sjá kortið og færsluna hér fyrir neðan.
Finnst ykkur þetta bara í lagi? Hvað er að frétta af pólitíkinni? Ætlum við bara að “starfshópa” þetta af okkur? pic.twitter.com/h3NavZ0ibr
— Helga Vala Helgadóttir 🇮🇸❤️🇪🇺 (@Helgavalan) September 30, 2023