Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur, kampavínsinnflytjandi og blaðamaður Morgunblaðsins, hæðist að fötluðum í ummælum um Stevie Wonder í nýjum hlaðvarpsþætti.
Siðfræðingurinn Stefán Einar Stefánsson var að ræða um leik Liverpool og Tottenham sem fram fór um síðustu helgi, í hlaðvarpsþættinum Dagmál. Dómgæslan í leiknum var mjög umdeild en hafin er rannsókn á aðgerðarleysi Varsjárinnar sem steig ekki inn í rangan rangstöðudóm í marki Luis Díaz, þrátt fyrir að aðaldómari leiksins hafi óskað eftir aðstoð. Þá var Curtis Jones, leikaður Liverpool, rekinn út af með rautt spjald en Liverpool ætlar að áfrýja þeim dómi, enda virðist leikmaðurinn hafa runnið til á boltanum og í löpp andstæðingsins. Tottenham sigraði leikinn 2-1.
„Þið þekkið það bara að þegar einhver er rangstæður er oft verið að velta fyrir sér einhverjum sentímetrum og jafnvel millímetrum um það hvort menn séu rangstæðir ekki,“ sagði Stefán Einar í hlaðvarpsþættinum og kom svo með afar ósmekklega athugasemd: „Stevie Wonder hefði séð þetta, að maðurinn var langt fyrir utan línuna, ef hún hefði bara verið teiknuð upp á skjáinn.“
Mbl.is þykir ósmekklegheitin greinilega sniðug og birti frétt upp úr hlaðvarpinu með fyrirsögninni „Stevie Wonder hefði séð þetta“