- Auglýsing -
Við Ránargötu 46 í miðbæ Reykjavíkur stendur lítið fjölbýlishús en á efstu hæð hússins er íbúð komin á sölu. Íbúðin, sem er rúmir 168 fermetrar, er bæði björt, opin og engri lík. Íbúðin var endurbætt árið 2007 en voru meðal annars gluggar á efri hæð stækkaðir en þaðan er fallegt útsýni.
Hér má sjá hjónasvítu á efri hæðinni.
Falleg og smekklega innréttuð setustofa á efri hæð
Eldhús
Vel skreyttir veggir
Herbergi á neðri hæð – Greinilega mikil áhugamanneskja um hatta sem býr hér!
Annað baðherbergið í íbúðinni
Að lokum má sjá frábæra staðsetningu íbúðarinnar. Stutt í miðbæinn og höfnina.