Sigga Birna Valsdóttir segir umræðuna um trans börn á villigötum.
Fjölskyldumeðferðarfræðingurinn Sigga Birna Valsdóttir ræðir í nýjum pistli um trans börn og þá umræðu sem hefur myndast í kringum þau á undanförnum vikum.
„Ég held að þau séu fá sem ekki taka heilshugar undir staðhæfinguna „Leyfum börnum að vera börn.“ Hún hefur sést víða í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum undanfarið og oft í þeim tilgangi að halda því fram að það séu í raun einhver sem ekki séu þessu fylgjandi. Þar á meðal fólk eins og ég.
Ég er ráðgjafi hjá Samtökunum ‘78. Síðustu þrettán árin hef ég hitt hundruð foreldra. Þessir foreldrar hafa leitað til mín vegna þess að börnin þeirra pössuðu ekki inn í kynjaboxin eða hreinlega héldu því fram að þau tilheyrðu ekki því kyni sem þeim var úthlutað við fæðingu. Flest þessara barna eru hinsegin í dag, mörg eru trans en nokkur eru ekki á lífi,“ sagði Sigga í pistlinum sem birtist á Vísi.
„Fólk talar um að vernda börnin, vernda börnin fyrir hinsegin fræðslu, vernda börnin fyrir „transvæðingu“ og vernda börnin fyrir kynfræðslu. Ég er nokkuð viss um að mikill meirihluti þeirra sem taka undir þessar staðhæfingar og dreifa efni sem heldur þeim á lofti gerir sér enga grein fyrir því hvað þau eru að gera né hvaða afleiðingar það hefur. Orð hafa alvöru afleiðingar,“ en Sigga er ekki viss um að allt fólkið sem er að dreifa röngum upplýsingum um transmálefni átti sig á hvað þau séu að gera.
„Ég er ansi hrædd um að flest það fullorðna fólk sem dreifir áróðri gegn trans fólki, hinsegin fræðslu og Samtökunum ´78 átti sig ekki á því hvað það er að gera.
Það áttar sig ekki á því að það er að dreifa upplýsingum sem ýta undir andúð á stórum hópi fólks, andúð á alvöru fólki, á börnum á öllum aldri, foreldrum þeirra og fjölskyldum,“ sagði hún og nefnir að sögur um einelti og þöggun séu hluti af upplifun margra trans einstaklinga.
„Trans börn hafa alltaf verið til og munu alltaf vera til. Sum ná að setja orð á upplifun sína mjög ung, jafnvel á leikskólaaldri, önnur mun seinna og sum ekki fyrr en á fullorðinsaldri. Áður fyrr var algengara að fólk væri eldra, enda yfirleitt þaggað harkalega niður í því ef það opnaði sig á barnsaldri. Sum sem hafa leitað til mín á fullorðinsaldri eiga hræðilegar sögur um bælingu, afneitun og skömm. Sögur um mikið einelti, þöggun og jafnvel alvarlegt ofbeldi með það eitt að markmiði að berja úr þeim afbrigðileikann. Afleiðingin er oft mikill og flókinn vandi sem getur tekur allt lífið að vinna úr,“ sagði Sigga Birna og að umræðan sé komin í hálfgert rugl. Það sé verið að ráðast á börn og fjölskyldur undir fölskum forsendum.
„Mig langar að hvetja fólk til að muna að stundum stuðlum við að vanlíðan annarra án þess að ætla okkur það. Öll umræða um að „vernda börnin“ hefur snúist í andhverfu sína, þar sem fólk telur sig geta ráðist á sum börn og sumar fjölskyldur undir því yfirskini að um einhverja hugmyndafræði sé að ræða, en ekki líf fólks.
Ég er hrædd við afleiðingarnar, ég er hrædd um börnin sem ekki hafa komið fram, börnin sem ekki hafa stuðning, börnin sem fá ekki leyfi til að vera börnin sem þau eru. Leyfum öllum börnum að vera börn.“