Þorsteinn Víglundsson þingmaður hefur verið ráðinn forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., mun hann hefja störf 16. apríl.
Þorsteinn greindi frá því í morgun að hann hafi ákveðið að láta af þingmennsku frá og með 14. apríl, en hann hefur setið á þingi fyrir Viðreisn frá árinu 2016. Árið 2917 gegndi hann embætti félagsmálaráðherra.
Sjá einnig: Þorsteinn Víglundsson hættir þingmennsku
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur þrjú dótturfélög, Björgun ehf., BM Vallá ehf. Og Sementsverksmiðjuna ehf., sem starfa við öflun hráefna, framleiðslu, sölu og þjónustu á byggingarmarkaði og við mannvirkjagerð á Íslandi.
Þorsteinn er ekki ókunnur fyrirtækinu, þar sem BM Vallá var lengi vel í eigu eignarhaldsfélaga Víglundar Þorsteinssonar heitins, föður Þorsteins, og fjölskyldu. Þorsteinn starfaði sem framkvæmdastjóri félagsins á árunum 2002 til 2010.