Þorvaldur Sigurbjörn Helgason lýsir eftir systur sinni, Sigurveigu Steinunni Helgadóttur, 26 ára, á Facebook en hún hefur ekki komið heim í tvo sólarhringa.
Málið er að sögn Þorvaldar, komið á borð lögreglunnar en í færslunni birtir hann nýja mynd af henni.
Færsluna má lesa hér:
„ATH NÝ MYND! Hún er með stutt hár núna.
Systir mín Sigurveig Steinunn Helgadóttir hefur ekki komið heim í rúma tvo sólarhringa og enginn hefur heyrt neitt frá henni á þeim tíma. Ef einhver hefur heyrt eitthvað eða veit eitthvað um ferðir hennar má sá hinn sami vinsamlegast hafa samband við mig á Messenger eða í síma 6625905. Einnig má hafa samband við mömmu mína Ragnheiður Lárusdóttir í síma 8486483.“