Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur um Vesturlandsveg undir Hafnarfjalli síðastliðinn fimmtudag. var maðurinn á 151 km hraða á klst. þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Strokupróf gaf til kynna að hann væri undir áhrifum kannabisefna og var hann af þeim sökum færður á lögreglustöðina í Borgarnesi. Þar viðurkenndi maðurinn fyrir lögreglu að hann ætti að vera í sóttkví vegna Covid-19 og var sú fullyrðing staðfest af almannavörnum. Í kjölfarið þurfti að sótthreinsa lögreglustöðinna, fatnað lögreglumannanna sem stöðvuðu manninn og lögreglubifreiðina. Þvínæst tók við tveggja sólarhringa bið á meðan beðið var eftir niðurstöðu úr Covid-19 prófi mannsins. Leiddi hún í ljós að hann var ekki smitaður og gátu lögreglumennirnir því snúið aftur til starfa. Skessuhorn greinir frá þessu.